Eigandi og stofnandi
Katrín Ruth Þorgeirsdóttir
Þroskaþjálfi, ráðgjafarþroskaþjálfi, fyrirlesari og leiðbeinandi
Ég er menntaður þroskaþjálfi og starfa sem ráðgjafarþroskaþjálfi hjá menntasviði sveitarfélags, þar sem ég veiti leik- og grunnskólum ráðgjöf og stuðning.
Ég hef áralanga reynslu af vinnu með fólki á öllum aldri með sérþarfir og krefjandi hegðun, meðal annars í 16 ár á heimili fyrir geðfatlaða, í barnavernd, í leik- og grunnskólum og í öldrunarþjónustu.
Ég held fyrirlestra og námskeið um hegðun, þroska og líðan fyrir skóla, foreldra og starfsfólk. Ég er jafnframt leiðbeinandi í skyndihjálp og menntaður aðgerðastjórnandi.
Ég hef einnig sett upp námskeið og unnið námsefni, kennsluefni, verkefni og æfingar sem eru sniðin að þörfum hvers hóps.